Leikskólagjöld almennt að hækka


Af 15 stærstu sveitarfélögum landsins hafa 10 þeirra hækkað gjaldskrá leikskóla samkvæmt nýrri könnun sem verðlagseftirlit ASÍ hefur gert, en horft var til tímabilsins frá 1. janúar 2014 til 1. febrúar 2015. Tíu sveitarfélög hafa hækkað hjá sér gjaldskrána, óbreytt verð er hjá fjórum og eitt hefur lækkað.  




Mesta hækkunin á almennri gjaldskrá fyrir átta tíma vistun ásamt fæði er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, um 8% og hjá Akureyrarkaupstað um 6%. Fyrir níu tíma vistun er mesta hækkunin, líkt og í 8 tíma vistun hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, um 8% og hjá Garðabæ um 4%. Þess ber þó að geta að gjaldið fyrir 9 tíma vistun er lægst í Skagafirði af öllum sveitarfélögunum.   




Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem hefur lækkað hjá sér gjaldskrána milli ára er lækkunin fyrir 8 tíma með fæði 3,3% og fyrir forgangshópa 1,4%.