Leikkonan Natasha Lyonne, sem þekktust er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Orange is the New Black, segist vera að íhuga að kaupa sér hús á Íslandi þar sem hún sé full viðbjóðs yfir bandarísku sumri.
Á fréttavefnum mbl.is í dag segir að leikkonan sé nýlega komin heim frá ferð sinni um Ísland en þar hafi hún heillast svo mikið af fólkinu og kuldanum að hana langi mikið til að kaupa sér eign hér á landi. Hún hafi jafnvel hitt fasteignasala í ferðinni.
\"Þeir elska ull og fisk,\" segir hún um Íslendinga og finnst nokkuð koma til þess hvað þeir verði spenntir þegar skammdegismyrkrið víkur fyrir björtum sumarnóttum. Þó haldi hún að það sé talsvert umn þunglyndi í landinu. Samt þráir hún að dvelja hér ofatr: \"Við fórum virkilega að hugsa um að kaupa sumarhús þar og hittum fasteignasala,“ segtir leikkonan og tekur fram að húsin á Íslandi líti mjög vel út og að fólkið sé áhugavert. Þá kunni hún vel við sig í kuldanum hér á landi: \"Hitinn annars staðar í heiminum er ógeðslegur. Mér líkar ekki við hita, mér líkar ekki við stuttbuxur, mér líkar ekki við óþverrann og skítinn sem fylgir hitanum, mér líkar ekki við að sýna á mér útlimina. Það gerir mig mjög taugaóstyrka,“ segir þessi nýjasti Íslandsvinur sem gæti hæglega orðið húseigandi á landinu bláa áður en langt um líður.