Leikarar í 101 íhuga uppsögn

Leikarar í Þjóðleikhúsinu eru grátt leiknir eftir ákvörðun gerðardóms í síðustu viku og sumir eru farnir að íhuga uppsögn að því er Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara fullyrðir.
 
\"Leikarar sem vinna í 101 eru með 20 prósentum lægri laun en leikarar í 105,“ segir Birna við ruv.is sem fjallar um málið í dag, en þar segir að gerðardómi hafi verið gert að horfa til sambærilegra kjarasamninga sem gerðir höfðu verið við sambærileg stéttarfélög að undanförnu, en að mati Birnu hafi hann ekki gert það. Í tilviki leikara í Þjóðleikhúsinu þýði það að þeir sitji eftir með sárt ennið.
 
Nýlega voru gerðir kjarasamningar við Leikfélag Reykjavíkur og Leikfélag Akureyrar sem fólu í sér umtalsverðar skipulagsbreytingar og breytingar á launakjörum.
 

Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara segir í samtali við fréttastofu RÚV að á sínum tíma hafi hún ítrekað óskað eftir fundi með samninganefnd ríkisins fyrir hönd leikara Þjóðleikhússins. En ekki haft erindi sem erfiði: \"Síðan fá þeir yfir sig lagasetninguna þrátt fyrir að vera ekki verkfalli. Ákvörðun gerðardóms skilur þá síðan eftir með gamlan kjarasamning sem hvorki hefur verið skoðaður né lagaður.“

Ákvörðun gerðardóms þýðir að leikarar sem vinna hjá Þjóðleikhúsinu eru með 20 prósentum lægri laun en leikarar Borgarleikhússins. Birna segir að Þjóðleikhúsleikarar æfa en líka sorgmædda yfir því hvernig komið sé fyrir Þjóðleikhúsinu sem eigi að vera flaggskip íslenskrar leiklistar. Þeir séu skildir eftir úti í kuldanum og sumir hverjir farnir að íhuga uppsögn.

Birna segist ekki trúa öðru en að þetta verði lagað - menntamálaráðherra hljóti að skerast í leikinn en til þess þurfi hann aukið fjármagn frá fjármálaráðuneytinu: \"Það væri hægt að laga þetta með til dæmis nýjum stofnanasamningi.“