Árshækkun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 9,2 prósent í nóvember. Á sama tíma hækkaði vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 6 prósent. Þetta er níundi mánuðurinn í röð þar sem árshækkun leiguverðs mælist meiri en árshækkun íbúðaverðs. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.
Ári áður, í nóvember 2017, hafði leiguverð hækkað um 11,5 prósent á einu ári en íbúðaverð um 15 prósent. Hækkun á leigu- og íbúðaverði er því mun hægari en fyrir ári síðan.
Leigumarkaður á landinu er hvað virkastur í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins, þ.e. á svæðinu vestan við Kringlumýrarbraut að Seltjarnarnesi. Í nóvember var 19 prósent allra þinglýstra leigusamninga á landinu öllu vegna leigusamninga í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins.
Einnig kemur fram í tilkynningunni að heildarfjöldi kaupsamninga vegna íbúðarhúsnæðis hafi aukist um 3 prósent árið 2018 frá fyrra ári. Þar af var 5,3 prósent aukning á höfuðborgarsvæðinu frá árinu áður og 7,4 prósent í þéttbýliskjörnum næst höfuðborgarsvæðinu, ásamt Akureyri. 12,4 prósent samdráttur mælist á öðrum svæðum á landinu milli áranna 2018 og 2019.
Húsnæðisskuldir heimilanna aukast
Um húsnæðisskuldir heimilanna er tekið fram í skýrslunni: „Ef horft er til þróunar í heildarstöðu útlána til heimilanna með veði í íbúð kemur fram að árleg raunaukning í þeim hluta skuldastöðu heimilanna óx nær stöðugt á nýliðnu ári.“
Óverðtryggð lán áfram vaxandi
Í tilkynningunni er einnig tekið fram að óverðtryggð íbúðalán heimilanna fari áfram vaxandi. „Í nóvember síðastliðnum námu ný óverðtryggð íbúðalán, að frádregnum umfram- og uppgreiðslum eldri lána, alls um 17,6 milljörðum króna. Hrein ný verðtryggð íbúðalán drógust hins vegar í heild saman um 2,9 milljarða króna í nóvember, þ.e.a.s. umfram- og uppgreiðslur eldri verðtryggðra íbúðalána voru hærri en ný verðtryggð lán heimilanna sem þeirri upphæð nemur,“ segir í skýrslunni.