Um klukkan hálf tvö í nótt brást lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við tilkynningu um að maður hafi ráðist á leigubílstjóra við Lækjargötu. Ágreiningur braust út sem endaði með því að maðurinn skallaði leigubílstjórann í andlitið þannig að blæddi úr nefi. Árásaraðilanum var haldið þegar lögregla kom á vettvang.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þar er einnig greint frá því að rétt fyrir miðnætti hafi bifreið verið stöðvuð á Hringbraut, þar sem ökumaður reyndist réttindalaus og hefur í raun aldrei öðlast ökuréttindi. Maðurinn hefur ítrekað gerst sekur um slík brot. Auk þess var bifreiðin á negldum hjólbörðum.
Í Breiðholti var maður í annarlegu ástandi handtekinn laust fyrir klukkan þrjú í nótt, grunaður um þjófnað og hnupl. Maðurinn vildi ekki gefa upp nafn eða kennitölu og var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins.
Í Mosfellsbæ var svo ökumaður handtekinn að nálgast hálf tvö í nótt vegna gruns um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, auk gruns um vörslu fíkniefna.