\"Á tímabili hélt ég að ég væri ólétt,“ segir Anika Lind Halldórsdóttir, 22 ára kona sem leigði bílskúr í Vesturbænum án þess að vita að myglusveppir væru alltumlykjandi í húsnæðinu.
Þetta kemur fram í viðtali við Aniku í fréttavefnum Stundinni í gær, en þar segir Anika að hún og kærasti hennar hafa fundið fyrir alvarlegum líkamlegum einkennum.
Á vefnum kemur fram að Anika Lind og kærasti hennar leigja 28 fermetra bílskúr við Holtsgötu í Vesturbæ Reykjavíkur á 100 þúsund krónur. Myglusveppurinn sem vex í íbúðinni hefur læst sig í rúm þeirra, hátalarakerfi, stofuborð, þvottavél og fötin þeirra.
„Þetta eru 28 fermetrar á 100 þúsund. Sem er rosalegt. Það eru ekki bara sveppir, heldur endalaust af pöddum og kóngulóm,“ útskýrir Anika í samtali við Stundina, þar sem hún er stödd á heimili sínu.
Anika er í leit að nýju heimili vegna alvarlegra áhrifa myglusvepps á heilsufar hennar og kærasta hennar, en hefur ekki haft erindi sem erfiði: \"Leiguverðið er að hækka svo rosalega undanfarna mánuði. Leigan er oftast 180 þúsund eða meira. Við ráðum kannski við 140 á mánuði, þá helst með húsaleigubótum. Við ráðum ekkert við svona dýrar íbúðir,“ segir hún við vefinn.