Leifur ingi bjargaði mannslífi í gær: „átt­um okk­ur á því að þetta var ekki hatt­ur, held­ur maður sem flaut þarna“

Leifur Ingi Magnússon bjargaði mannslífi, ásamt mági sínum, þegar tveir menn féllu í í Úlfljóts­vatn í gær. Annar maðurinn, bandaríkjamaður er lát­inn. Leiðsögumaður hans var hætt kominn. Leifur Ingi segir mikilvægt að björgunarhringir séu til staðar á straumþungum veiðisvæðum eins og þessu. Í samtali við Morgunblaðið segir Leifur:

„Ég og mág­ur minn vor­um þarna við veiðar og það kem­ur þarna ís­lensk­ur leiðsögumaður með þrjá er­lenda ferðamenn með sér. Við vor­um sitt­hvor­um meg­in við eyju sem er þarna á Kaldár­höfðanum. Við ákváðum að taka okk­ur pásu og at­huga hvort að þeir væru bún­ir að fá fisk. Við löbbuðum þarna til þeirra og fyrsta sem við sjá­um er ís­lenski leiðsögumaður­inn úti í vatni. Okk­ar fyrsta hugs­un var bara „hvað er í gangi, er hann að synda þarna?“ Okk­ur fannst við sjá hatt þarna aðeins lengra og við átt­um okk­ur fljót­lega á því að leiðsögumaður­inn er í vand­ræðum og haus­inn á hon­um rétt upp úr vatn­inu og hann er þarna að ör­magn­ast.“

Leifur segir að hann og mágur hans hafi klætt sig úr og farið út í vatnið. Fljótlega áttuðu þeir sig á að ekki var um hatt að ræða. Leifur segir:  

„Á leiðinni átt­um við okk­ur á því að þetta sem við sáum var ekki hatt­ur held­ur maður sem flaut þarna. Við för­um með mann­inn í land og kom­um hon­um í þurr föt og átt­um okk­ur á því að við náum ekki til er­lenda manns­ins. Við náum að kalla á fólk sem var þarna úti hinum meg­in á bakk­an­um og segja þeim að það sé ennþá maður í vatn­inu.“

 Leifur greinir frá því að ekki hafi tekist að bjarga lífi bandaríska mannsins. Hann segir í samtali við Morgunblaðið:

 „Þetta er nátt­úru­lega gríðarlega kalt vatn sem klár­ar þig á fimm mín­út­um.“

Ítarlegt viðtal við Leif er að finna á vefsíðu Morgunblaðsins.