Leifsstöð orðin svefnstaður túrista

Æ fleiri erlendir ferðamenn kjósa að verja síðustu nóttinni á Íslandi í Leifsstöð og er nú svo komið að margir gangar og salir flugstöðvarinnar eru krökkir af sofandi fólki, ýmist á beru gólfinu eða í svefnpokum.

Myndin sem fylgir þessari frétt var tekin um síðustu helgi í Leifsstöð og er dæmigerð fyrir ástandið þar sem hefur versnað til muna á síðustu mánuðum með stórfjölgun ferðafólks. Ástæðurnar fyrir því að erlent ferðafólk velur sér þennan náttstað eru einkum tvær; annars vegar til að spara sér gistikostnað síðustu nóttina fyrir flug, eða sakir þess að ekkert gistipláss er að hafa á hótelum og gistiplássum í grennd.

Guðni Sigurðsson á upplýsingasviði Isavia kannast vel við vandann - og staðfestir að hann fari vaxandi. Starfsfólk Isavia reyni ítrekað að benda ferðafólki sem velur sér næturstað í Leifsstöð á gistimöguleika á svæðinu í kringum Leifsstöð, en það beri lítinn árangur; fólkið sé kannski að leggja sig fyrir flug árla morguns og finnist það ekki taka því að panta sér herbergi í grennd. Erfitt sé því að taka á þessum vaxandi vanda sem sé hvimleiður fyrir allan þann fjölda sem fari um Leifsstöð allan sólarhringinn og komist varla að sjálfsinnritunartækjum fyrir fólki sem sofi á gólfinu í kring.

Eins og fram kom í fréttum Hringbrautar í gærdag má búast við 25% fjölgun erlendra ferðamanna til Íslands í ár, samanborðið við síðasta ár sem merkir að ein milljón og 250 þúsund ferðamenn leggi leið sína til Íslands í ár - og nálega allir um Leifsstöð.