Carles Puigdemont fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Katalóníu var handtekinn í Þýskalandi í morgun á grundvelli alþjóðlegrar handtökuskipunar þegar hann var að koma yfir landamærin frá Danmörku.
Puigdemont, sem er fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, var að koma frá fundum í Finnlandi með þarlendum þingmönnum. Spænsk yfirvöld endurnýjuðu í síðustu viku handtökutilskipunina á hendur honum fyrir uppreisn og áróður í baráttu hans fyrir sjálfstæði Katalóníu. Finnska lögreglan hafði fengið boð um að handtaka hann en ekki er ljóst hvers vegna það var ekki gert.
Puigdemont, sem hefur verið í útlegð í Belgíu frá því í október í fyrra. Alls eru 25 af helstu leiðtogum aðskilnaðarsinna Katalóníu í fangelsi, landflótta eða ákærðir fyrir ýmis brot.