Leiðtogar kóreu-ríkjanna hittast í apríl

Norður-Kóreumenn segist jafnframt tilbúnir að ræða við Bandaríkin um möguleika á því að hætta við kjarnorkuvopnaáætlun sína, ef hægt verði að fyrirbyggja afskipti erlendra ríkja af stjórnskipulagi Norður Kóreu. Ákveðið hefur verið að leiðtogar Norður- og Suður Kóreu hittist í næsta mánuði í fyrsta skipti í meira en áratug. 

Þetta er samkvæmt CNN  haft eftir sendifulltrúum Suður Kóreu sem funduðu með Kim Jong-un, einvaldi í Norður-Kóreu og fleiri ráðamönnum í Pyongyang í dag. Áætlað er að fundur leiðtoganna verði haldinn seint í apríl í þorpinu Panmunjom á hlutlausa beltinu milli ríkjanna.

Norður Kóreumenn hafa samþykkt að stöðva allar kjarnorkuvopnatilraunir meðan á viðræðum stendur.