Leiðsögumenn gagnrýna regluleysi

Í þættinum Ferðalagið í kvöld segir Gerður Kristný segir frá uppáhalds borginni sinni sem er Nice í Frakklandi. Borgin hefur veitt skáldkonunni mikinn innblástur í gegnum tíðina. Sölvi Tryggvason greinir frá ferðalagið sínu til Líbanon og farið er stuttlega yfir það sem nefna má ferðafréttir vikunnar.

Fáum upplýsingar um Hengilsvæðið rétt utan Reykjavíkur hjá Belindu Eir Engilbertsdóttur, eða bara Bellu eins og hún er kölluð.

 Ekki síst er rætt um leiðsögumenn og sér í lagi þá sem vita ekkert í sinn haus og hafa enga menntun til að gegna leiðsögumennsku.  Kári Jónasson, meðstjórnandi í Félagi leiðsögumanna og Vilborg Anna Björnsdóttir, starfandi formaður gagnrýn þetta harðlega í þættinum. Meðal annars gagnrýna þau að ekki sé enn búið að löggilda starfsheiti leiðsögumanna. Spurning er hvort að nýtt Alþingi bæti þar úr enda leiðsögn um landið í tómum ólestri í mörgum tilvikum eins og dæmin sanna.

 

 

Ferðalagið er í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis og er á dagskrá í kvöld kl.21 og endursýndur á sunnudaginn.