Starfheiti leiðsögumanna hefur enn ekki fengið lögverndun. Frumvarp þess efnis er enn í meðförum Alþingis. Þann 9. mars fór fram á þingi fyrsta umræða um frumvarp Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokki og fleiri þingmanna um lögverndun starfsheitisins.
Í frumvarpinu segir meðal annars að sá eini hafi rétt til að kalla sig leiðsögumann hafi til þess leyfi frá Ferðamálastofu.
Skilyrði leyfis er sá sem hefur lokið leiðsögunámi hérlendis sem uppfyllir kröfur námskrár um leiðsögunám frá því ráðuneyti sem fer með fræðslumál. Gagnrýnt hefur verið að skólastjórnendur Ferðamálaskóla Íslands veiti villandi upplýsingar um vægi menntunar skólans og neiti af gefa upp innihald námsins. Fréttatíminn fjallaði um þetta í liðinni viku. Hringbraut ræðir við stjórnarmanna í Félagi leiðsögumanna, Bryndísi Kristjánsdóttur, en þessa dagana eru einmitt inntökupróf í leiðsögumannanám í fullum gangi.