Kjararáð úrskurðaði fyrr í mánuðinum að laun forstjóra þriggja opinberra stofanna skyldu leiðrétt afturvirkt um allt að sautján mánuði. Þetta eru forstjórar Umhvefisstofnunar Orkustofnunar og Landsnets. Fjallað er um þetta á Vísi í dag.
Laun forstjóra Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar hækka afturvirkt og verða 1,4 milljónir á mánuði og laun forstjóra Landsnets hækka afturvirkt og verða 1,6 milljónir króna á mánuði. Kjararáð ákveður launakjör æðstu embættismanna ríkisins sem svo er háttað um að þau launakjör geta ekki ráðist á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Ráðið er sjálfstætt.
rtá
Nánar www.kjararad.is