Leiðinleg afturhaldspólitík

Björt Ólafsdóttir þingmaður Bjartrar framtíðar, skrifar frá útlöndum á Facebook, um endalok stjórnarmyndunartilraunar Katrínar Jakobsdóttur.

„Það er ansi mikið verið að berjast um hver á að vera Svarti Péturinn í þessu síðasta spili. Ég vil bara segja, í fullri einlægni. Hugmyndin var mjög góð.

Ég var sjálf á tíma ekki alveg viss hvort að vinstri vængurinn sannarlega vildi þetta. En trúði og vonaði. Og vildi allra helst styðja trausta konu til góðra verka.

Það er vont að að tókst ekki. Svo má fólk bara kenna þeim um sem það vill. Það má hinsvegar gera ráð fyrir því að margir leikir hafi verið spilaðir á sama tíma.

Æ hvað þessi gamla afturhaldspólitík er leiðinleg. Og bara vond fyrir allt og allt.“

-sme