Leið til losunar hafta kynnt á morgun

Stefnt er að því að kynna frumvarp um losun fjármagnshafta í ríkisstjórn á morgun. Upphaflega stóð til að gera það á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag, en umfangsmiklar tillögur ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir kjarasamningum gerðu það að verkum að beðið var með það.


Þetta kemur fram í Frétablaðinu í dag en þar segir einnig að einungis örfáir einstaklingar viti hvað í frumvarpinu felist. Flestir ráðherranna muni sjá það fyrst á fundi ríkisstjórnarinnar í fyrramálið. Ástæðan er sú að efni frumvarpsins getur haft áhrif á markaði og því hafa aðeins sérvaldir fengið að lesa þau yfir. Í framhaldi af ríkisstjórnarfundinum verður efni frumvarpsins kynnt stjórnarandstöðunni. Sú kynning hefði farið fram í dag ef náðst hefði að kynna frumvarpið á föstudag.


Fjármagnshöft hafa verið við lýði á Íslandi frá því í nóvember 2008. Sitjandi ríkisstjórn hefur haft sérfræðingahópa að störfum við að finna leiðir til að losa um höftin þorra þess tíma sem hún hefur setið að völdum. Talið er að aðferðafræðin við losun haftanna á næstu vikum verði fólgin í útgáfu á skuldabréfi í erlendri mynt og færslu á kvikum eignum í langtímaeignir til að leysa út snjóhengjuna, þá tæpu 300 milljarða króna sem eftir eru af aflandskrónum sem eru í eigu annarra en slitabúa föllnu bankanna.