Finnbogi Þorkell Jónsson og Halldór Kristinn Haraldsson ætla ekki framar að taka að sér verkefni fyrir ferðaþjónustufyrirtækið Guide to Iceland. Þeir segjast sjaldan hafa lent í eins miklu klúðri og í tveggja daga ferð um Snæfellsnesið með 36 ferðamönnum frá Asíu.
Það sé sem betur fer ekki í menningu ferðamanna frá þeirri heimsálfu að kvarta. Hefðu ferðamennirnir verið frá Bandaríkjunum eða Bretlandi hefði allt orðið brjálað. Framkvæmdastjóri Guide to Iceland vísar til mannlegra mistaka.
Finnbogi segir frá í færslu á Facebook þar sem hann birtir tölvupóst til Guide to Iceland að ferðinni lokinni. Þar rekur hann það sem gekk á í ferðalaginu á aðfangadag og jóladag. Gengur hann svo langt að velta fyrir sér hvort fyrirtækið muni „stúta stærstu atvinnugrein þjóðarinnar“, þ.e. ferðamennskunni.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181229138