Magnúsi Stefánssyni sem varð þjóðþekktur sem trommari í vinsælum hljómsveitum eins og Egó, Utangarðsmönnum og Stjórninni leið illa þegar hann kom fram opinberlega með öllum þessum grúppum sakir félagsfælni og kvíða.
Þessum erfiðleikum sínum lýsti hann af einlægni og hispursleysi í þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld, ern félagsfælni og kvíði hefur hrjáð hann um áratugaskeið. Þannig hætti hann í Sinfóníuhljómsveit Íslands á árum áður þegar hann fékk gagnrýni í eitt skipti og kennir hann kvíða og félagsfælni um þessi hörðu viðbrögð sín.
Stuttu síðar byrjaði hann í hljómsveit með Pollock bræðrum og Bubba. Og þrátt fyrir að hafa gaman af tónlistinni og af því að sjá fólk skemmta sér fann hann fyrir vanlíðan sökum kvíða og félagsfælni. Í þættinum ,,Fólk með Sirrý" sagði Magnús, sem í dag er mjög vinsæll fyrirlesari í Marita fræðslunni, frá góðum ráðum til að takast á við vandann og láta ekki félagsfælnina taka völdin. Að læknisráði stundar hann krefjandi líkamsrækt að minnsta kosti í 30 mínútur á dag til að halda einkennum kvíðans í skefjum.
Hægt er að horfa á þáttinn hér á Hringbraut.