Leið ekki vel í atvinnumennskunni

Sjónvarpsþáttur 433.is er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 21:15, en þar Hólmbert Aron Friðjónsson knattspyrnukappi lýsa því hvernig leið í atvinnumennskunni úti í heimi sem er fráleitt bara dans á rósum.

Hólmbert var að koma heim úr atvinnumennsku þar sem honum leið ekki sérlega vel en hann hefur byrjað vel sem framherji hjá KR sem er einmitt komið á toppinn í deild þeirra efstu.

Í þætti kvöldsins verður einnig rætt við Leif Garðarsson sem fylgist vel með Pepsi deildinni, en hann mun fara yfir helstu umræðuefni síðustu daga úr deildinni. Er öll pressan á FH? Voru þjálfarabreytingar nauðsynlegar í Árbænum? Er Keflavík fallið?

Ekki missa af lifandi, fróðlegum og skemmtilegum fótboltaþætti kvöldsins klukkan 21:15.