Allt er nú til: legsteinar og grill

Legsteinar og borðplötur hjá Granítsteinum, grill og fylgihlutir hjá Byko verða til umfjöllunar í þættinum Allt er nú til sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45.

Flestir missa einhvern sér nákominn á lífsleiðinni. Á slíkri stundu vill fjölskyldan og nákomnir heiðra minningu hins látna. Ekkert er eins varanlegt og legsteinninn sem er valinn. Hann mun standa um aldur og ævi.  Hringbraut fór með þessu hugarfari í heimsókn til Sigurðar hjá Granítsteinum í Hafnarfirði. Hann sagði okkur úr hverju legsteinarnir eru og margt annað sem þeir vinna úr hinum magnaða marmara.

Í þætti kvöldsins verður einnig farið í grillið – við förum uppí Byko Breidd. Þar hittum við Steinar sem er viskubrunnur. Hann sagði okkur frá grillum og öllum þeim fylgihlutum sem þeir eiga. Grill er nefnilega kúnst – en samt svo venjulegt.

Þættirnir Allt er nú til eru unnir af sölu- og markaðsdeild Hringbrautar, en þar gefst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að kynna vöru sína og þjónustu.

Allt er nú til er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45, en hann er í umsjá Díönu Írisar Guðmundsdóttur, [email protected]