Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mun í dag mæla fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna. Í frumvarpinu er lagt til að krónu á móti krónu skerðingu verði breytt þannig að í staðinn muni koma til skerðing upp á 65 aura á móti einni krónu. Einnig er lagt til að bakreikningur verði ekki sendur í árslok, en þess í stað í lok hvers mánaðar. Fréttablaðið greindi frá þessu í gær.
„Þessar breytingar eru hugsaðar með það að markmiði að það sé aukinn hvati fyrir fólk að fara út á vinnumarkaðinn. Breytingarnar sem við erum að gera þarna eru breytingar sem ríma síðan við það sem mun taka við í nýja [félagsmála]kerfinu, en við erum að stíga fyrsta skrefið. Það má búast við frekari breytingum,“ segir Ásmundur í samtali við Fréttablaðið.
Starfshópur lagði til gjörbreytt kerfi með nýjum bótaflokkum og segir Ásmundur að allt sem viðkemur þessum málum verði að skoða í ljósi þeirra tillagna.
Í núverandi lögum er gert ráð fyrir að ef öryrki fari út á vinnumarkaðinn skerðir hann örorkubætur sínar um eina krónu fyrir hverja krónu sem hann vinnur sér sjálfur inn. Hefur bakreikningur þar að lútandi verið sendur á viðkomandi aðila í lok hvers árs.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir í samtali við Fréttablaðið að hún sé mjög sátt með þann lið frumvarpsins sem snýr að breytingum á greiðslum bakreikninga.
„Við erum búin að bíða eftir því síðan á síðasta ári, frá því að við fengum staðfestingu á því að hægt væri að taka upp samtíma keyrslu á örorkulífeyri svo að fólk væri ekki að fá þessa hræðilegu bakreikninga,“ segir hún.
ÖBÍ hefur löngum talað gegn krónu á móti krónu skerðingu og segir Þuríður að bandalagið vilji sem fyrr afnema hana með öllu. „Mér finnst þetta dálítið aumt bara. Það er búið að hringla um þetta svo lengi og það var alltaf talað um það að þegar það ætti að fara að breyta almannatryggingakerfinu ætti að fara að vera hægt að taka út þessa skerðingu. En þá er ekki einu sinni hægt að taka út 50 prósent af henni.“
Hún segir frumvarpið þó jákvætt skref og vonast eftir því að það gangi í gegn, „svo þessir peningar geti farið í notkun, því að ekki veitir af.“