Leggur til breytingar á lögum um loftslagsmál

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál. Markmiðið með frumvarpinu er að styrkja umgjörð og stjórnsýslu loftslagsmála hér á landi. Meðal annars er kveðið á um skyldu stofnana ríkisins að setja sér loftslagsstefnu. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Í tilkynningunni segir að í frumvarpinu sé mælt fyrir um loftslagsstefnu ríkisins og lögð sú skylda á Stjórnarráð Íslands, stofnanir ríkisins og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins að setja sér loftslagsstefnu. Þessar stofnanir skuli setja fram skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun viðkomandi starfsemi, ásamt aðgerðum svo þeim markmiðum verði náð. Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að mikilvægt sé að Stjórnarráðið og ríkisaðilar sýni frumkvæði og fordæmi í þessum efnum.

„Það að mæla með þessum hætti fyrir um skyldu ríkisaðila til að setja sér loftslagsstefnu og skýr markmið um samdrátt í losun markar tímamót. Með þessu sýnum við ríkan vilja til að takast af krafti á við verkefnið fram undan, að minnka áhrif okkar á loftslagið. Frá því að lög um loftslagsmál voru sett fyrir sjö árum hefur loftslagsvandinn vaxið og meðvitund um hann stóraukist. Margt hefur breyst og rík þörf er á að uppfæra lögin. Ríkisstjórnin hefur sett loftslagsmálin á oddinn og mikil vinna á sér nú stað varðandi þennan málaflokk. Loksins hafa loftslagsmálin fengið þann sess sem þeim ber,“ segir Guðmundur Ingi.