Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi sínu um bann við burðarpokum úr plasti. Verði frumvarpið samþykkt verður frá 1. júlí á þessu ári óheimilt fyrir verslanir að afhenda burðarpoka úr plasti án endurgjalds. Frá og með 1. janúar 2021 yrði óheimilt fyrir verslanir að afhenda burðarpoka úr plasti yfir höfuð og gildir þar einu hvort það er með eða án gjalds. RÚV.is greinir frá.
Bæði er um að ræða þykka poka sem hægt er að kaupa á afgreiðslukössum verslana og þunna poka sem hafa fengist endurgjaldslaust í grænmetiskælum og við afgreiðslukassa.
Bannið tæki ekki til plastpoka sem eru söluvara í hillum í verslunum, svo sem nestispoka og ruslapoka sem seldir eru margir saman í rúllum.
Í frétt RÚV segir að lengra sé gengið í frumvarpi umhverfisráðherra en skylt er samkvæmt innleiðingu Evrópusambandsins um að draga úr notkun á plastpokum. Evrópusambandið heimili ríkjum að undanskilja þynnstu pokana banninu en samkvæmt frumvarpinu yrði það ekki gert hér á landi.