„leggjum þetta ekki á íbúana“

Starfsemi kísilmálmverksmiðjunnar United Silicon í Helguvík hefur snúist upp í gríðarstórt vandamál í stað þess að vera sú lyftistöng sem hún átti að vera fyrir bæjarfélagið.

Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir á Þjóðbraut í kvöld að ekki komi til greina að byrjunarörðugleikar verksmiðjunnar varið mikið lengur en forstjóri Silicon lýsti á fundi í gær að þeir gætu þurft að taka eitt til tvö ár. Friðjón segir það allt of langan tíma. „Við getum ekki lagt það á íbúana“, segir hann. Staðan sé mjög slæm og allar leiðir þurfi að kanna til að koma til móts við íbúana. „ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi segir í umræðum í þættinum í kvöld að skyldur fyrirtækisins í fjárfestingarsamningnum séu ekki nógu ríkar og það eigi að skoða hvort hægt sé að taka til baka ívilnanir ríkisins til fyrirtækisins vegna forsendubrests. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG telur að ráðherra eigin að kanna slík mál.

 

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hélt opinn fund í gærmorgun um málefni verksmiðjunnar, með þeim sem koma að málum frá ólíkum hliðum, þar með talið umhverfisráðherra. Kolbeinn er í nefndinni og einnig Ásmundur. Friðjón sat einnig fyrir svörum á fundinum.  

Of mikil mengun hefur hlotist af starfseminni sem gangsett var í nóvember í fyrra, íbúar finna fyrir því meðal annars í öndunarfærum. Mengun mældist langt yfir mörkun en síðan hefur það verið dregið til baka. Ólykt er þó mikil sem er ein tegund mengunar. Verið er að kanna málið hjá stjórnendum fyrirtækisins. Verksmiðjan er mjög nærri byggð, skólum og leikskólum.

Þá mun Umhverfisstofnun á næstunni ráðast í verkfræðilega úttekt á hönnun og rekstri verksmiðjunnar.