Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, Árni Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir, Guðmundur Steingrímsson og Birgitta Jónsdóttir ætla á næstu dögum að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að þjóðin fái að kjósa um hvort þráðurinn verði tekinn upp að nýju í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í tillögunni verður gert ráð fyrir að kosningin fari fram 26. september í haust.
Formennirnir segja tillöguna í anda loforða beggja formanna stjórnarflokkanna frá því fyrir og eftir síðustu alþingiskosningar um að þessi mál yrðu sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Róbert Marshall þingflokksformaður Bjartrar framtíðar segir að þess verði óskað að tillagan fari á dagskrá svo fljótt sem auðið er.