Frumvarp til laga liggur nú fyrir á Alþingi um endurgreiðslur til félagasamtaka til almannaheilla vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, og mælti hann fyrir því á Alþingi í gær.
Lögunum er ætlað að styðja við mannvirkjagerð og aðrar framkvæmdir félagasamtaka sem heyra til þriðja geirans svokallaða, t.d. björgunarsveitir og íþróttafélög, og hvetja til þess að félögin efli starfsemi sína og/eða bæti aðstöðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Gunnarssyni.
Í tilkynningunni er einnig tekið fram að flest þeirra félaga sem starfa að almannaheillum séu utan virðisaukaskattkerfisins og eigi því ekki möguleika á að fá endurgreiðslu innskatts vegna framkvæmda við mannvirkjagerð.
Þar segir einnig að með endurgreiðslukerfi myndi ríkissjóður veita félagasamtökum til almannaheilla fjárhagslegan stuðning við uppbyggingu aðstöðu og verði frumvarpið að lögum öðlast félög innan þriðja geirans rétt til endurgreiðslu virðisaukaskatts sem fallið hefur til vegna mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda sem miða að því að efla starfsemi eða bæta aðstöðu félaganna.
Flutningsmenn frumvarpsins ásamt Jóni eru þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D), Ásmundur Friðriksson (D), Njáll Trausti Friðbertsson (D), Óli Björn Kárason (D), Páll Magnússon (D), Vilhjálmur Árnason (D), Ágúst ÓlafurÁgústsson (S), Guðjón S. Brjánsson (S), Guðmundur Andri Thorsson (S), Ólafur Ísleifsson (Utan þingflokka), Ólafur Þór Gunnarsson (V) og Willum Þór Þórsson (B).