Leggja til eina vinnu- og velferðarstofnun

Fulltrúar í Öryrkjabandalagi Íslands leggja til sameiningu Sjúkratrygginga Íslands, Tryggingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar í eina Vinnu- og velferðarstofnun að því er fram kemur fram í áliti þeirra í ráðherraskipaðri nefnd um endurskoðun laga um almannatryggingar. Verkefni hennar var annars vegar að fjalla um kerfi starfsgetumats sem taki við af kerfi örorkumats og sveigjanleg starfslok og hins vegar var verkefni nefndarinnar að fjalla um fjárhæðir lífeyrisgreiðslna til aldraðra og öryrkja. 


Í tilkynningu frá ÖBÍ segir að bandalagið hafi afráðið að vera leiðandi í þessari vinnu og setti af stað  vinnuhóp til að kortleggja hugmyndir um starfsgetumat og meta áhrif fyrirhugaðra breytinga fyrir örorkulífeyrisþega. Vinnuhópurinn þess skoðaði innleiðingu starfsgetumats út frá mörgum þáttum en að mati hópsins þarf að uppfylla nokkur skilyrði áður en innleiðing á starfsgetumati geti hafist. Fyrst þurfi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í öðru lagi þurfi að samþykkja lög sem banna mismunun á grundvelli fötlunar og í þriðja lagi þurfi að tryggja fjölbreytt úrval sveigjanlegra hlutastarfa áður en starfsgetumat verði tekið upp.