Leggja til 750 milljóna arðgreiðslu

Stjórn Icelanda­ir Group hf mun leggja til við aðal­fund fé­lags­ins í vor að greidd­ur verði arður til hlut­hafa að fjár­hæð 750 millj­ón­ir króna, eða sem nem­ur 0,15 krón­um á hvern hlut. Auk þess hef­ur stjórn­in samþykkt end­ur­kaup á bréf­um fé­lags­ins um allt að 750 millj­ón­ir króna.

Þetta kem­ur fram í fjár­festa­kynn­ingu Icelanda­ir, sem mbl.is vitnar til í dag. Árs­upp­gjör Icelanda­ir sem var birt á föstu­dag­inn sýndi tap upp á 4,1 millj­arð króna á fjórða árs­fjórðungi síðasta árs. Hagnaður árs­ins í var aft­ur á móti 3,9 millj­arðar króna. 

Í fjár­festa­kynn­ing­unni er tapið á fjórðungn­um rakið til eldsneytis­verðs sem var 35% hærra í árs­lok en þegar það var sem lægst í júní. Rúm­ur helm­ing­ur af áætluðum eldsneytis­kaup­um þessa árs, 55%, hef­ur verið áhættu­var­inn á verðinu 549 dal­ir á hvert tonn. 

Þar sem af er degi hafa hluta­bréf í Icelanda­ir hækkað lít­il­lega í verði, eða um 0,3% í 103 millj­óna króna viðskipt­um.