Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp þess efnis að lífeyrir öryrkja og eldri borgara fylgi þróun lágmarkslauna í samræmi við nýundirritaða kjarasamninga. Með frumvarpinu er lagt til að elli- og örorkulífeyrir almannatrygginga hækki í skrefum og nái 368 þúsund krónum árið 2022 líkt og lágmarkslaun.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, en allir í þingflokki Samfylkingarinnar eru meðflutningsmenn. „Þegar stór orð á við Lífskjarasamningur eru notuð þarf að tryggja að hann þýði sómasamleg lífskjör fyrir alla þá hópa sem setið hafa eftir. Hækkun lífeyris almannatrygginga í samræmi við hækkun lægstu launa er réttlætismál.”
Í tillögu flokksins er bent á að lægstu laun hækki samkvæmt kjarasamningum upp í 317 þúsund krónur á mánuði frá 1. apríl og eigi að hækka um 18.000 krónur til viðbótar árið 2020. Það sé þá viðmið um mannsæmandi framfærslu og hljóti það að eiga við öryrkja og eldri borgara líka. Einnig er áréttað að draga verði úr ósanngjörnum tekjuskerðingum.
Í tilkynningu frá Samfylkingunni segir að ljóst sé að stór hópur aldraðra og öryrkja búi við fátækt. Tæplega fjórðungur öryrkja búi við skort á efnislegum gæðum samkvæmt nýjustu rannsóknum Hagstofu Íslands og voru öryrkjar sá hópur sem verst stendur þegar þátttakendur voru greindir eftir atvinnustöðu.