Leðurblökur fundust á siglufirði

Þrír laumuf­arþegar tóku sér far með dönsku skipi sem kom frá Belg­íu til Siglu­fjarðar síðdeg­is á fimmtu­dag­inn var. Um var að ræða litl­ar leður­blök­ur sem höfðu falið sig í farmi skips­ins.

Verka­menn sem unnu við upp­skip­un­ina sáu dýr­in. Eitt þeirra og það minnsta forðaði sér frá borði og flaug eitt­hvað út í busk­ann. Hin tvö voru gómuð og sett í kassa.

Séra Sig­urður Ægis­son, sókn­ar­prest­ur, þjóðfræðing­ur og áhugamaður um nátt­úru­fræði, tók leður­blök­urn­ar í sína vörslu. Hann fór með þær á skrif­stofu sína og tók af þeim meðfylgj­andi mynd­ir sem henn gaf Hringbraut góðfúslega heimild til að birta.

Leður­blök­urn­ar höfðu hægt um sig og leyfðu prest­in­um að mynda sig með ís­lensk­um tíkalli. Þegar hann sneri við þeim bak­inu tóku þær hins veg­ar flugið, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um gesta­komu þessa í Morg­un­blaðinu í dag.