Laxveiðin hrundi á norðurlandi í sumar

Tvö þúsund færri laxar komu á land í sumar en í fyrra, ef marka má veiðitölur af angling.is. Mestu munar þar um hrun á Norðurlandi og miklar sveiflur í nokkrum af stærstu ánum.

Þegar laxveiði í 46 af helstu laxveiðiám landsins er talin saman, vantar ríflega 1.800 laxa, miðað við árið í fyrra. Í fyrra veiddust 39.613 laxar í umræddum ám en þeir voru 37.804 í sumar. Mestu munar um dræma veiði í Ytri-Rangá, miðað við árið í fyrra, og svo laxveiðina á Norðurlandi, sem hefur heilt yfir hrunið.

Þó skal tekið fram að ekki allar laxveiðiár hafa skilað lokatölum, svo einhverja laxa getur vantað upp á.

nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/laxveiin-hrundi-a-norurlandi-i-sumar