Augljós þenslumerki eru á byggingarmarkaði hér á landi að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands um fjölda starfsmanna í þessari grein atvinnulífsins. Fólki fækkar aftur á móti enn í sjávarútvegi.
Á 12 mánaða tímabili, frá febrúar 2017 til janúar 2018, voru að jafnaði 17.644 launagreiðendur á Íslandi og hafði launagreiðendum fjölgað um 648 (3,8%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 189.200 einstaklingum laun sem er aukning um 8.400 (4,7%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
Í sjávarútvegi hefur launþegum fækkað undanfarin ár. Í ársbyrjun 2017 var sjómannaverkfall og voru launþegar í sjávarútvegi mun færri en venjulega fyrstu mánuði þess árs. Því gefur það réttari mynd að bera fjölda launþega í janúar 2018 saman við fjöldann tveimur árum fyrr, en launþegum í sjávarútvegi hefur fækkað um 8% á þessu tveggja ára tímabili.
Í janúar 2018 voru 2.552 launagreiðendur og um 12.400 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, og hafði launþegum fjölgað um 1.300 (12%) samanborið við janúar 2017. Í janúar voru 1.686 launagreiðendur og um 24.600 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 900 (4%) á einu ári. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 7.000 (4%).
Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.