Launin eru niðurlægjandi

„Dapur vegna þess hvernig komið er fyrir minni stétt. Samningslaus í heilt ár. Útborguð laun fyrir nóvember lægri en launahækkun þingmanna. Allir flokkar sögðust ætla að hækka laun kennara kæmust þeir til valda. Einmitt, hve oft hef ég heyrt þetta? Sveitarfélögin ráða ekki við að reka grunnskóla, það er alveg ljóst miðað við afstöðu þeirra til kjarabóta kennara. Forsvarsmenn kennara liðónýtir. Leggja fyrir sama samninginn í tvígang sem eðlilega var felldur.“

Hann heldur áfram: „Nýjasta skrautið er stimpilklukka þar sem ég á að skrá öll aukaverk sérstaklega og fylla upp í tímaramma mánaðarins, ef ekki þá hýrudráttur. Endalausar nýjar kröfur sem tengjast nýrri aðalnámsskrá. Örfáir stúdentar hefja nám í kennarafræðum ár hvert sem getur ekki endað nema á einn veg að það mun skorta kennara. Launin eru þess eðlis að ungt fólk fer ekki í fimm ára krefjandi nám. Ég er kominn í hæsta taxta sökum aldurs en grunnlaun mín eru lægri en launahækkun Guðna Th. Margir hugsa sér til hreyfings, tækifærið er núna með batnandi efnahag. Allir vilja að börnin og unglingarnir fái góða kennara, sumir segja það jafnvel lykilatriði fyrir komandi framtíð en sú verður ekki raunin ef fram heldur sem horfir. Í síðustu kjarasamningum hafa ekki fengist launahækkanir nema gegn sölu á réttindum! Hvaða stétt semur um kjör sín á þann hátt?Það þarf þjóðarsátt um bætt kjör kennara sögðu frambjóðendur á fundinum góða. Eflaust er það rétt en líkurnar, miðað við efndir síðustu áratugina, eru engar. Ég legg mig fram við sinna starfi mínu vel en launakjörin slökkva hægt og rólega á þeim neista. Líklega er rétti tíminn til að skipta um starf núna áður en kulnun í vinnnuumhverfi nær yfirtökunum. Mér þykir ósegjanlega vænt um nemendur mína en niðurlægingin við að skoða launaseðil mánaðarins hrekur mig til að leita á önnur mið.“