Launavísitalan hækkar um 2,3%

Launavísitala í júnímánuði mældist 517,1 stig og hækkaði um 2,3% frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,1%.

Þá hækkaði vísitala kaupmáttar launa í júní um 2,0% frá fyrri mánuði og er 123,6 stig. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 5,5%.

Í vísitölunni gætir áhrifa nýgerðra kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem undirritaðir voru í maí. Þar var kveðið á um sérstaka hækkun kauptaxta, breytinga á launatöflum auk samkomulags um launaþróunartryggingu að lágmarki 3,2% frá 1. maí 2015. Sömuleiðis gætir áhrifa vegna kjarasamninga ríkis og Kennarasambands Íslands sem og Læknafélags Íslands. Þeir voru undirritaðir á öðrum ársfjóðrungi 2014 og í ársbyrjun 2015.