Launauppbót og laun stjórnar hækkuð vegna góðrar afkomu

Í upphafi síðasta árs ákvað stjórn Íslandspósts ohf. (ÍSP) að greiða starfsmönnum fyrirtækisins launauppbót í ljósi góðrar afkomu fyrirtækisins. Rétt rúmu hálfu ári síðar fékk fyrirtækið 500 milljóna króna neyðarlán frá ríkissjóði til að forðast gjaldþrot. Um svipað leyti lagði stjórn ÍSP það til að hækka laun sín. Þetta er meðal þess sem lesa má úr fundargerðum stjórnar.

Á fundi stjórnar 29. janúar 2018 viðraði Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri ÍSP, hugmyndir framkvæmdastjórnar fyrirtækisins um að greiða starfsfólki þess launauppbót. Langt væri liðið síðan slíkt hefði verið gert en áætlaður rekstrar­afgangur ársins 2017 gæfi tilefni til þess. Árið 2017 hagnaðist ÍSP um 216 milljónir og hafði árið áður skilað rúmlega 120 milljóna afgangi. Árin þrjú á undan hafði samanlagt tap á móti verið 280 milljónir króna.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2019190209503