Óleiðréttur launamunur kynjanna á Íslandi var 18,3% árið 2014 og hefur minnkað frá fyrra ári úr 19,9%. Munurinn var 19,9% á almennum vinnumarkaði en 13,2% hjá opinberum starfsmönnum, þar af var munurinn 14,1% hjá ríki og 6,7% hjá sveitarfélögum.
Þetta kemur fram í nýjum tölur Hagstofu Íslands um launakjör á vinnumarkaði. Þar segir að lítill launamunur hjá starfsmönnum sveitarfélaga haldist í hendur við litla dreifingu launa í þeim hópi og hátt hlutfall kvenna, en konur eru um 75% starfsmanna sveitarfélaga.
Í tilkynningu frá Hagstofunni vegna þessa segir jafnframt: "Þegar horft er til atvinnugreina er launamunurinn mestur í fjármála- og vátryggingastarfsemi 37,5% og minnstur í heilbrigðis- og félagsþjónustu 7,4%. Mikill launamunur í fjármála- og vátryggingastarfsemi skýrist af mikilli dreifingu launa í þeirri atvinnugrein. Launamunur minnkar nokkuð frá fyrra ári í þeim atvinnugreinum sem opinber rekstur er mestur, það er í opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þá dregst launamunurinn einnig nokkuð saman í framleiðslu."