Verkafólk í sjávarútvegsfyrirtækjum landsins horfir upp á svimandi háar arðgreiðslur til eigenda þeirra á sama tíma og samtök atvinnurekenda neita þeim um mannsæmandi kjarabætur. Þetta voru efnisleg skilaboð Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Akraness á Þjóðbraut Páls Magnússonar í gærkvöld. Vilhjálmur mætti þangað hlaðinn yfirlýsingum og talaði enga tæpitungu. Fólkið í mikilvægustu undirstöðuatvinnugrein Íslendinga, alls 3500 manns sem vinna fiskinn sem allt íslenskt samfélag hagnast svo mikið á, verði að fá sína hlutdeild í einstaklega góðri afkomu sjávarútvegsfyrirtækjanna.
Vilhjálmur nefndi HB Granda sem dæmi, það vel rekna fyrirtæki sem hefði hagnast um 5,6 milljarða á síðasta ári. Sama dag og verkafólk hafi boðað vinnustöðvun til að leggja áherslu á kröfur sínar hafi HB Grandi borgað út 2,7 milljarða í arðgreiðslur til eigenda sinna. Kröfur landverkafólksins hjá HB Granda kosti fyrirtækið 600 milljónir á ári, fimmfalt minna en sem nemur arðinum. "Ætlar einhver að segja mér að það sé ekki nóg svigrúm til að hækka launin hjá svona fyrirtækjum," sagði Vilhjálmur á Þjóðbraut í gær.