Launakostnaður aðstoðarmanna ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur hækkað um tæplega hundrað milljónir króna á þeim tveimur árum sem núverandi ríkisstjórnin hefur setið.
Tölurnar eru bornar saman við tvö síðustu ár Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Heildarkostnaður aðstoðarmanna þeirrar ríkisstjórnar, að meðtöldum kostnaði vegna sérstakrar efnahagsráðgjafar, voru ríflega 330 milljónir. Þessi kostnaður féll til á tímabilinu 1.maí 2012 til 30.apríl 2013.
Fyrstu tvö ár núverandi ríkisstjórnar telur kostnaðartímabilið 1.maí 2013 til 30.apríl árið 2015. Launakostnaður aðstoðarmanna ráðherra Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, að meðtöldum launakostnaði efnahagsráðgjafa, nam ríflega 426 milljónum króna. Biðlaun eða annar kostnaður vegna starfsloka, er ekki innifalinn í þessum tölum. Heimild til að ráða fleiri aðstoðarmenn var veitt vorið 2011 og má sjá að hækkun á launakostnaði er nokkur síðasta árið sem ríkistjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs sat.
Hækkunin heldur áfram við ríkistjórnarskipti vorið 2013 og er kostnaðurinn hvað mestur fyrsta árið sem Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn situr. Á öðru ári lækkar kostnaður aðstoðarmanna ráðherra, en kostnaður við efnahagsráðgjafa hækkar.