Þjónustufulltrúar í tónlistarhúsinu Hörpu fá greitt tímakaup í samræmi við samninga sem gerðir voru í fyrra og laun forstjórans verða lækkuð í samræmi við úrskurð kjararáðs. Þetta var samþykkt á fundi stjórnar Hörpu í dag og visir.is segir frá og að Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri hafi greint starfsmönnunum frá þessu í dag.
Stjórn Hörpu vill þannig mæta gagnrýni á kjör starfsfólksins. Miklar deilur urðu þegar laun forstjórans hækkuðu en þjónustufulltrúar lækkaðir í launum til að mæta hagræðingarkröfum í rekstri hússins.
Einnig var samþykkt að falla frá 8 prósenta hækkun stjórnarlauna sem stjórnin samþykkti á aðalfundi 26. apríl. Launin hafa þá verið óbreytt frá 2013.
Á stjórnarfundinum bað forstjóri einnig um að utanaðkomandi fagaðili gerði markaðslaunagreiningu á kjörum þjónustufulltrúa Hörpu sem starfa í hlutastarfi og var það samþykkt.