Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er með hæstu tekjurnar af stjórnendum fimm stærstu sjóða landsins, en mánaðartekjur hans nema 2,7 milljónum króna.
Þetta kemur fram í samantekt DV í dag um launakjör stjórnenda stærstu líffeysissjóða landsmanna en samkvæmt henni er laun þeira á bilinu 1,7 milljónir króna til 2,7 milljónir á mánuði. Launalægsti framkvæmdastjórinn í þessum hópi stjórnar Lífseyrissjóði starfsmanna ríkisins.
Athygli vekur að launahæstu stjórnandi lífeyrissjóðanna er jafnframt sá sem hækkaði mest í launum á milli áranna 2013 og 2014, en blaðið segir hækkunina nema 6,7% á sama tíma og almennir launamenn þurftu að sætta sig við 2,8% hækkun á sínum launum. Stjórnarformaður Lífseyrissjóðs verzlunarmanna segir við blaðið að ástæðu þessarar hækkunar megi rekja til þess að laun hjá sambærilegum hópi stjórnenda hafi hækkað um svipað hlutfall.