Launaskrið millistjórnenda hefur nær stöðvast en sá hópur hækkaði mest í launum í fyrra miðað við við tekjublað Frjálsrar verslunar. Tekjur yfir 3.700 Íslendinga eru að finna í nýjasta tekjublaðinu.
Launahæstur er forstjóri Salt Investments, Árni Harðarsson, með tæplega 48 milljónir í mánaðartekjur. Þar á eftir er Valur Ragnarsson, forstjóri Medis með 24 milljónir og í sætinu þar fyrir neðan má finna Jakob Óskar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Promens með 18 milljónir.
Í blaðinu er ýmislegt áhugavert að finna, svo sem að yfirmaður þjóðkirkjunnar, Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands er sjötti launahæsti af prestum landsins, launalægri en sóknarprestarnir á Selfossi og í Grindavík og prófasturinn í Breiðholtsprestakalli.
Jón G. Hauksson, ritstjóri segir að upplýsingarnar séu notaðar af ráðningarstofum sem noti uppgefin laun þar til viðmiðunar. Upplýsingarnar varpi líka ljósi á þróun á vinnumarkaði. Í nýja blaðinu má sjá að launaskrið svokallaðra „næstráðenda“ í stjórnum fyrirtækja hefur nær stöðvast en þeir hækkuðu mest í launum í fyrra. Læknar hækkia nú mest í launum sem kemur ekki á óvart eftir launahækkanir í fyrra. Í blaðinu er að finna tekjuhæstu forstjórarana, starfsmenn fjármálafyrirtækja, embættismenn og stjórnmálamenn, stjórnendur hagsmunasamtaka og aðila vinnumarkaðarins, forstjórar ríkisfyrirtækja, lögfræðinga, læknar endurskoðendur, flugfólk og ýmsa sérfræðinga, presta, listamenn, íþróttamenn, skólamenn, sjómenn og útgerðarmenn. Tekjulistinn kemur út nú í tuttugasta sinn. Tekjurnar byggja ávallt á upplýsingum um útsvari, það er launum en ekki fjármagnstekjum. Alls 21 atvinnuflokkur.
Þjóðþekktir einstaklingar virðast sumir gefa upp lág laun miðað við hve áberandi velgengni þeir njóta. Jón segir í viðtali á Hringbraut engar ályktanir dregnar af tölunum í blaðinu, þær standi bara fyrir sínu og gefi mynd af stöðunni í tilteknum stéttum og aðallega þeim sem hafa áhrif og völd í samfélaginu.