Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins óttast að landsmenn velji aðra kreppu fremur en aukinn kaupmátt, krafan um of miklar launahækkanir muni leiða af sér samdrátt og erfiðleika fyrir fólk og fyrirtæki.
Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Þorstein í Viðskiptablaðinu sem kom út í gær, en þar segir hann afar brýnt að breyta vinnumarkaðslíkaninu svo smærri hópar fgeti ekki gert áhlaup á langtímastöðugleika. Allir launahópar verði að fylgjast að, ekki sé sanngjarnt að einn þeirra fái mun ríflegri kauphækkun en annar - og bendir Þorsteinn þar á hvernig ríkið hefur hagað sér við í ósamræmi við almenna markaðinn við samningaborðið. Hann óttast að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verði mögulega sagt upp út af opinberum samningum.
\"Við stöndum frammi fyrir tveimur kostum: Annaðhvort gerum við nauðsynlegar umbætur á vinnumarkaðslíkaninu eða við tökumst á við það verkefni í kjölfar næstu kreppu sem er þá ekki langt undan,\" segir Þorsteinn: \"Við erum einfaldlega komin á endastöð,\" bætir hann við.
Hann segir laun komin langt umfram framleiðni í landinu: \"Launahlutfallið er 60 til 65% af verðmætasköpun í landinu sem er eitt hæsta launahlutfallið sem þekkist meðal vipskiptalanda okkar,\" bendir Þorsteinn á í viðtalinu.