Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra leggur til að starfsmenn þeirra fyrirtækja sem ákveðið hafa að yfirgefa krónuhagkerfið öðlist rétt á að fá greidd laun í þeirri mynt sem vinnuveitandinn notar í eigin bókhaldi.
Með öðrum orðum, segir Þorsteinn: Að launþegar geti fengið laun sín borguð í sömu mynt og fyrirtækin nota.
Tilefni þessara nýjustu skrifa Þorsteins á hringbraut.is er sú fregn að Landsnet hafi nú næst í hóp þeirra fyrirtækja og stofnana sem hafa yfirgefið krónuhagkerfið og gera reikninga sína framvegis upp í dollurum: \"Þetta er svo eðlileg ákvörðun að hún er varla í frásögu færandi, \" bendir Þorsteinn á, en segir engu að síður fréttina gefa tilefni til hugleiðinga fyrir þá sök að fyrirtækið sé alfarið í opinberri eigu. Landsvirkjun sé langsamlega stærsti eigandinn, en hún hafi raunar yfirgefið krónuhagkerfið löngu fyrir hrun.
Og tvískinnningurinn á Íslandi er einmitt þessi, bendir Þorsteinn á: \"Ríkisstjórnin má ekki heyra annað nefnt en launafólk verði fjötrað í krónuhagkerfinu um alla framtíð. Hún telur hins vegar heillaráð að fyrirtæki skattborgaranna komi sér út úr því. Það gera líka flest einkafyrirtæki sem það geta. Og ríkisstjórninni finnst það þjóðráð.\"
Veruleikinn er sá, segir Þorsteinn að mest öll útflutningsverðmæti þjóðarinnar verða til í fyrirtækjum sem ekki treysta sér til að starfa í krónuhagkerfinu. Þau gera reikninga sína upp í erlendri mynt og taka lán í erlendri mynt til að bæta samkeppnishæfnina: \"Þannig blása þau í verki á kenninguna um að gengislækkanir séu allsherjar hjálpræði fyrir útflutningsgreinarnar,\" skrifar hinn reyndi stjórnmálamaður, sem eitt sinn var sjávarútvegsráðherra - og raunar líka fjármálaráðherra.
Óréttlætið er þetta að hans mati: \"Þessi tvöfalda gjaldeyrishagfræði veldur meiri mismunun en þekkist almennt í lýðræðisríkjum. Upplausnin í íslenskum stjórnmálum á vafalaust að hluta rætur í því óréttlæti sem af þessari skipan mála leiðir.\"
Og hann endar pistil sinn svona: \"Litla fréttin um að Landsnet hafi yfirgefið krónuhagkerfið sýnir glöggt hvert straumfallið stefnir. Það má tefja framrásina en vandséð er að fyrir hana megi stemma.\"