Launabilið er orðið of breitt

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ metur það svo að launabilið á Íslandi sé orðið of breitt; fámennt samfélag eins og Ísland þoli ekki að forstjóralaun séu upp undir 30 milljónir á mánuði á meðan lágmarkslaun séu hundrafalt lægri.

Þetta kom framn í Launaþættinum á Hringbraut í gærkvöld þar sem Sigmundur Ernir ræddi við Benedikt Jóhannesson útgefanda Frjálsrar verslunar sem hefur gefið út tekjublað sitt í aldarfjórðung. Gylfi og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka vtinnulífsins voru einnig viðmælendur þáttarins og taldi Gylfi aðspurður að launabilið hefði verið að aukast á undanliðnum árum og það væri, sem fyrr segir, orðið alltof mikið.

Hann sagði að sú umræða hefði verið tekin í ranni Alþýðusambandsins á síðasta ársþingi þess hvort setja ætti þak á hámarkslaun hér á landi en horfið hefði verið frá því. Þó hefði á mæli margra á þinginu verið rætt um að elilegur launamunur væri þetta frá sexföldu að tíföldu bili milli lægstu launa og hæstu launa, en erfitt væri þó að taka af skarið í þessum efnum og fylgja einni ákvörðun eftir.

Þorsteinn Víglundsson hjá SA sagði í þættinum að launajöfnuður hér á landi væri meiri en þekktist víða í nágrannalöndum okkar og það væri í sjálfu sér eftirsóknarvert í jafn litlu samfélagi og byggi þetta land, en þó yrði að vera einhver launamunur svo það væri akkur í því fyrir fólk að mennta sig og taka að sér aukna ábyrgð, öðruvísi þrifist hagkerfið ekki og myndi ella staðna.

Þáttinn má sjá í heild sinni og að hluta á hringbraut.is