Stjórn VÍS hefur samþykkt í samræmi við samþykkt aðalfundar fyrr á þessu ári, að hækka laun stjórnarmanna úr 200 þúsund á mánuði upp í 350 þúsund og fyrir stjórnarformann úr 400 þúsund upp í 600 þúsund.
Launahækkunin nemur 75% fyrir stjórnarmenn og 50% fyrir stjórnarformann.
Stjórn VÍS hafði áður sagt að hún myndi afsala sér þessari hækkun og sagði fyrr á árinu í tilkynningu til kauphallar að það væri til að bæta sátt á vunnumarkaði en þá voru kjaraviðræður og
„Það er von stjórnar VÍS að afsal hækkunar stjórnarlauna verði þáttur í að stuðla að sátt á vinnumarkaði,“ sagði þá.