Mánaðarlaun skurðlækna hafa hækkað mest hjá heilbrigðisstarfsmönnum milli ára, útgreidd heildarlaun þeirra hafa hækkað um 174 þúsund krónur.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
174.000 krónur er svipuð upphæð og strípaðar bætur öryrkja.
Mikill munur er á launahækkunum skurðlækna og t.d. sjúkraliða samkvæmt Mogganum. Laun sjúkraliða hækkuðu um 22.000 milli ára – eða átta sinnum minna en laun skurðlækna.