Laun hjá landsvirkjun hækka um 45%

Laun stjórnarmanna og forstjóra Landsvirkjunar hækkuðu um 45 prósent á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi Landsvirkjunar sem birtur var í síðustu viku. Laun fimm framkvæmdastjóra og aðstoðarforstjóra hækkuðu um 24 prósent.
 
Að því er fram kemur á vef ruv.is í morgun hafa laun stjórnarmanna og forstjóra hækkað um 49 prósent milli ára, en þau eru reiknuð í dollurum, en að teknu tilliti til sterkara gengis krónunnar má gera ráð fyrir að hækkunin nemi 45 prósentum í íslenskum krónum. Með sama hætti hækkuðu laun stjórnarmanna í tveimur dótturfélögum um 40 prósent og laun fimm framkvæmdastjóra og aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar um 24 prósent. 

Stjórnarlaun hækkuðu úr 12,7 milljónum króna í nítján milljónir á milli ára, samkvæmt framsetningu ársreikningsins. Laun forstjóra fóru úr 1,7 milljón í 2,5 milljónir á mánuði. Samanlögð laun fimm framkvæmdastjóra og aðstoðarforstjóra fóru úr 136 milljónum í 171 milljón, eða að meðaltali úr 1,9 milljóna króna mánaðarlaunum í 2,4 milljónir.

Landsvirkjun hagnaðist um 11,2 milljarða króna í fyrra samanborið við 6,9 milljarða króna árið 2016.