Laun háttsettra miðuð við kjarasamninga

Með frumvarpinu, sem birt er á vef Fjármálaráðuneytisins, er lagt til að kjararáð ákvarði einungis laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, dómara, saksóknara, allra ráðherra, ráðuneytisstjóra og þeirra skrifstofustjóra sem heyra undir ráðherra sem fer með starfsmannamál ríkisins og fara með fyrirsvar fyrir hönd ráðherra við gerð kjarasamninga, seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra og ríkissáttasemjara.

Þá verði kjör skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands og sendiherra miðuð við hefðbundna kjarasamninga, þ.e. kjarasamninga Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Kjör aðstoðarmanna ráðherra taki svo mið af kjörum skrifstofustjóra.

Aukin miðstýring í kjaramálum opinberra stjórnenda hefur orðið undanfarin ár og þróunin orðið sú að óhóflega margir einstaklinga falla undir ákvörðunarvald kjararáðs, mun fleiri en ástæða er til miðað við eðli starfa og sérstöðu gagnvart framkvæmdarvaldinu, segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Breytt fyrirkomulag launaákvarðana embættismanna, forstöðumanna og annarra þeirra sem falla undir úrskurðarvald kjararáðs er kynnt í nýju frumvarpi sem birt var í dag á vef ráðuneytisins þar sem óskað er umsagna um drögin. Samkvæmt frumvarpinu á að fækka verulega þeim sem kjararáð ákvarðar laun og önnur starfskjör. Þannig á að fjölga aftur þeim sem fá laun samkvæmt samningum á hefðbundinn máta.