Laun hækka 1. maí

Þann fyrsta maí næstkomandi hækka laun almennt um 3 prósent samkvæmt kjarasamningum SA og aðildarsamtaka ASÍ.

Lágmarkslaun hækka meira eða sem nemur 7 prósent og verður lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf 300 þúsund krónur.

Á vef Samtaka atvinnulífsins er minnt á að 1. júlí næstkomandi hækkar mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði á samningssviði SA og aðildarfélaga ASÍ úr 10,0 prósentum í 11,5 prósent.

Ný kaupgjaldskrá er komin út og er aðgengileg á vef SA en þar er að finna uppfærðar launatöflur og má nálgast hér.