Laun forsetans hækkað um 300 þúsund

Laun forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar hafa hækkað um rúmlega 290 þúsund krónur frá hruni eða um rétt tæplega 16 prósent. Þrátt fyrir þetta hefur forsetinn setið eftir þegar kemur að launahækkunum þjóðkjörinna fulltrúa.


Að því er fram kemur í DV í dag er forsetinn rétt tæplega hálfdrættingur á við forsætisráðherra og aðra ráðherra þegar horft er til hækkana í prósentum. Forsetinn hefur að sögn blaðsins ekki gert athugasemdir við laun sín.


Tölur þessar eru byggðar á launatöflu kjararáðs frá 1. janúar 2009 til síðustu ákvörðunar, 1. febrúar 2014. Eftir því sem best verður séð hafa laun forsætisráðherra hækkað mest allra frá hruni ef þessi hópur er skoðaur sérstaklega.