Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur afráðið að hækka laun Bjarna Bjarnasonar, forstjóra veitunnar um 6,9 prósent sem þýðir að mánaðarlaun hans fara úr rífum 2,2 milljónum króna í tæpar 2,4 milljónir króna.
Þá eru ónefndar 132 þúsund krónur sem forstjórinn fær í bifreiðahlunnindi á mánuði og tæp hálf milljón sem hann þiggur á mánuði fyrir stjórnarsetu í Gagnaveitu Reykjavíkur og Orku náttúrunnar, tveimur dótturfélögum Orkuveitu Reykjavíkur.